Vorhlaup Krógabóls

Í gær var Vorhlaup Krógabóls á Akureyri. Allar deildir leikskólans gengu frá leikskólanum og niður á hlaupabraut Þórs við Hamar. Þar tók Solla á móti öllum og var byrjað á því að hita upp og tóku allir þátt af miklum móð. Allir voru með og voru það verðlaunin, að taka þátt og gera sitt besta. Hér er hægt að skoða myndir úr hlaupinu og einnig myndband af upphituninni.

Birt í Fréttir, Fréttir og Kynningarefni, Uncategorized.