Þemavinna heilsuleikskólans Króks í vor hefur verið að vinna með álfa og tröll . Í listasmiðju hafa börnin verið að hlusta á ýmsar álfa- og tröllasögur og skoða myndir af tröllum. Þau hafa síðan unnið myndverk út frá sögunum og búið til álfa, lukkutröll og tröllapotta. Börnin hafa farið í vettvangsferðir út í hraun og fundið álfasteina. Þar hafa þau lagt við hlustir til að athuga hvort þau heyri í álfum og töldu sig hafa heyrt eitthvað. Einnig hafa þau verið að byggja álfahallir úr grjóti, spýtum og öðru smálegu sem þau hafa fundið í umhverfinu. Í listasmiðju er lögð mikil áhersla á ferlið en minni áhersla á útkomuna. Þar eru börnin að þjálfa fínhreyfingar (t.d. að beita blýanti og skærum rétt), læra mismunandi aðferðir og hugtök og æfa samvinnu. Skapandi vinna veitir börnum einnig vettvang til að öðlast reynslu við að rannsaka umheiminn og með þeim hætti auka skynjun og næmi fyrir umhverfinu. Í yfirmarkmiðum Heilsustefnunnar kemur fram að stefna skuli af því að auka gleði og vellíðan. Í listsköpun hefur barnið vettvang til að tjá tilfinningar sínar og upplifun á umheiminum, frjáls og óheft tjáning eykur líkurnar á að einstaklingi líði vel.
Sjá frekari frétt og myndir á heimasíðu leikskólans http://www.leikskolinn.is/krokur/