fundagerð – AÐALFUNDUR SAMTAKA HEILSULEIKSKÓLA
Category Archives: Uncategorized
Rafræn heilsubók og afhending matseðla
Föstudaginn 18. Janúar 2019 buðu Samtök Heilsuleikskóla til veislu í Heilsuleikskólanum Urðarhóli að tilefni afmælisdegi Unnar Stefánsdóttur frumkvöðuls Heilsustefnunnar. Þennan dag tók Samtök Heilsuleikskóla formlega við höfundarrétti uppskrifta og matseðla sem Skólar ehf gáfu fyrst út árið 2013. Samtök Heilsuleikskóla hafa nú þegar fengið næringarfræðing til að yfirfara og endurútgefa uppskriftir og átta vikna matseðil. Auk þess var rafræn Heilsubók kynnt. Elstu börn Heilsuleikskólans Urðarhóls sungu undr stjórn Birte Harksen. Við þökkum starfsmönnum Urðahóls fyrir yndislegar móttökur.
Óvænt heimsókn í Kópavoginn
Á mánudaginn var komu þær Kristín Eiríksdóttir, formaður Samtaka Heilsuleikskóla, og Sigrún Hulda Jónsdóttir varaformaður, í kaffi á Kársnesbraut 99 í Kópavogi þar sem Unnur Stefánsdóttir bjó. Fjölskylda Unnar tók á móti þeim og voru heitar umræður fram eftir degi um málefni heilsuleikskólanna. Tilgangur heimsóknarinnar var að afhenda fjölskyldu Unnar nýja Heilsustefnu-fánann, sem er aldeilis glæsilegur. Hér má sjá þær Sigrúnu og Kristínu og Hákon Sigurgímsson, eiginmann Unnar, með nýja fánann.
Vorhlaup Krógabóls
Í gær var Vorhlaup Krógabóls á Akureyri. Allar deildir leikskólans gengu frá leikskólanum og niður á hlaupabraut Þórs við Hamar. Þar tók Solla á móti öllum og var byrjað á því að hita upp og tóku allir þátt af miklum móð. Allir voru með og voru það verðlaunin, að taka þátt og gera sitt besta. Hér er hægt að skoða myndir úr hlaupinu og einnig myndband af upphituninni.
Alþjóðadagur hreyfingar í Króki
Alþjóðadagur hreyfingar er föstudaginn 10. maí. Árlega hvetur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin aðildarþjóðir sínar til að halda alþjóðadag hreyfingar hátíðlegan. Tilgangur dagsins er að minna á lykilhlutverk daglegrar hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan fólks á öllum aldri.
Í heilsuleikskólanum Króki var ákveðið að í tilefni dagsins yrði hreyfingin ofarlega á baugi þennan dag og öðrum í samfélaginu boðið að hreyfa sig með . Leikskólinn bauð upp á teygjuæfingar með starfsfólki bæjarskrifstofunnar, tók þátt í íþróttatíma með grunnskólabörnum, dansaði með starfsfólki verslunarmiðstöðvarinnar, gerði æfingar með starfsfólki og viðskiptavinum Landsbankans og æfðum pútt á púttvellinum með eldri borgurum í Miðgarði. Starfsfólk leikskólans tekur þátt í átakinu Hjólað í vinnuna.
Þemavinnan Álfar og tröll í heilsuleikskólanum Króki
Þemavinna heilsuleikskólans Króks í vor hefur verið að vinna með álfa og tröll . Í listasmiðju hafa börnin verið að hlusta á ýmsar álfa- og tröllasögur og skoða myndir af tröllum. Þau hafa síðan unnið myndverk út frá sögunum og búið til álfa, lukkutröll og tröllapotta. Börnin hafa farið í vettvangsferðir út í hraun og fundið álfasteina. Þar hafa þau lagt við hlustir til að athuga hvort þau heyri í álfum og töldu sig hafa heyrt eitthvað. Einnig hafa þau verið að byggja álfahallir úr grjóti, spýtum og öðru smálegu sem þau hafa fundið í umhverfinu. Í listasmiðju er lögð mikil áhersla á ferlið en minni áhersla á útkomuna. Þar eru börnin að þjálfa fínhreyfingar (t.d. að beita blýanti og skærum rétt), læra mismunandi aðferðir og hugtök og æfa samvinnu. Skapandi vinna veitir börnum einnig vettvang til að öðlast reynslu við að rannsaka umheiminn og með þeim hætti auka skynjun og næmi fyrir umhverfinu. Í yfirmarkmiðum Heilsustefnunnar kemur fram að stefna skuli af því að auka gleði og vellíðan. Í listsköpun hefur barnið vettvang til að tjá tilfinningar sínar og upplifun á umheiminum, frjáls og óheft tjáning eykur líkurnar á að einstaklingi líði vel.
Sjá frekari frétt og myndir á heimasíðu leikskólans http://www.leikskolinn.is/krokur/