Ræða Ástu Ragnheiðar á afmælisdegi Unnar Stefánsdóttur

Það kom ferskur vindur með Unni Stefánsdóttur inn í kvennastarfið í Framsóknarflokknum fyrir þremur áratugum þegar við hittumst fyrst. Ég var uppfull af jafnréttisbaráttunni, komandi úr kvennaframboðinu, og lítið annað komst að hjá mér þá stundina. Unnur var líka mikill jafnréttissinni, – en hún hafði ýmis önnur hugðarefni sem hún bar mjög fyrir brjósti og voru ekki sérstaklega hátt skrifuð í Framsóknarflokknum þá. Það var heilsueflingin og hollustan. Hún var keppnismannsekja eins og allir sem þekktu hana vita og lét ekkert á sig fá þótt einhverjir flissuðu að þessu heilsutali hennar. Hún hélt áfram hnarreist og brosandi.

Hún varð formaður Landssambands framsóknarkvenna árið 1985. Við stjórnarkonurnar tókum undir með henni og gerðum heilsu og manneldismálin að okkar áherslumálum. Hún hreif okkur með sér og hollustumálin urðu samhliða jafnréttinu. Hún sýndi í verki áherslur sínar og stefnu og bauð upp á niðursneidda ávexti, grænmeti, safa og aðra hollustu á fundum, – þar sem vínarbrauð, sætmeti og kaffi hafði haft fastan sess. Við settum manneldis- og neyslustefnu sem forgangsmál fyrir tilstilli hennar og ég sannfærðist og varð eldheitur talsmaður hollustunnar.

Þegar ég fór í fyrsta sinn inn á þing í upphafi árs 1987 sem varamaður fékk ég í hendur þingsályktun frá Noregi á norsku um opinbera manneldis- og neyslustefnu til að flytja á þinginu, sem Unnur hafði útvegað og það var ekki aftur snúið. Í framhaldinu þrýstu konurnar með Unni í fararbroddi á heilbrigðisráðherra Framsóknar, Guðmund Bjarnason, að leggja fram slíka stefnu, sem hann gerði.

Heilbrigðismálin, heilsuefling og hreyfing urðu mín helstu áherslumál síðar, meðal annars vegna áhrifa frá Unni og hennar baráttu. Hún hafði sannfært mig, eins og svo marga aðra. Þar sem hér eru allmargir stjórnmálamenn get ég fullyrt að hún hafði mikil áhrif á forvarnar- og heilsubaráttu þeirra margra, og nefni ég Siv Friðleifsdóttur fv. heilbrigðisráðherra sérstaklega, að öðrum ólöstuðum.

Unnur var trú sinni stefnu, eitilhörð á sinn hægláta hátt. Það var sama hvað á gékk til að reyna að bregða fyrir hana fæti í þessum hollustuleiðangri. Hún stóð alltaf keik og lét ekkert aftra sér. Hún var sjálf sjálft heilbrigðið uppmálað. Hún var aðdáunarverð og henni var ekki fisjað saman. Hún var hrein og bein og mjög sérstök manneskja. Hún var á undan sinni samtíð, stóð með sannfæringu sinni óhrædd og huguð.

Þegar ég starfaði í Tryggingastofnun var Unnur að vinna að heilsueflingarverkefni fyrir Heilbrigðisráðuneytið og Landlækni. Þá voru Tryggingastofnun, Landlæknir og ráðuneytið til húsa við Hlemm í sama húsi. Lágu leiðir okkar þá oft saman og var ánægjulegt að fylgjast með ötulu stafi hennar,  hún var ótrúleg. Það voru plaköt, bæklingar, leiðbeiningar og hvaðeina. Þetta var á þeim tíma sem skilningur var ekki mikill á þessum málum og hún mætti oft þessum takmarkaða skilningi.

Hún var í heilbrigðis- og hollustuleiðangri í lífinu og fór alla leið. Hvort sem var heima eða að heiman. Var alltaf sjálfri sér samkvæm. Hún var sannkallaður trúboði heilsustefnunnar eins og einn fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, orðaði það svo ágætlega við mig. „Þetta með matinn var henni heilagt.“ Og hún barðist fyrir styrkjum og fjárveitingum til málefnisins, hvar sem matarholu var að finna.

Þótt Unni hafi verið skammtaður takmarkaður tími í árum talið hér á meðal okkar, þá er tíminn ekki endilega sá mælikvarði sem rétt er að nota á lífið heldur hversu miklu menn fá áorkað í lífinu, hversu mikil áhrif þeir hafa á samtíð sína og hvort þeir marki þar spor. Unnur áorkaði miklu í lífinu, hún var afburða keppnismaður í  öllu sem hún tók sér fyrir hendur eins og íþróttamet og annar árangur hennar sýnir.

Hún á glæsilega fjölskyldu, mannvænleg börn sem hún sinnti mjög vel og var stefnumálum sínum trú í hvívetna við uppeldið. Ég minnist líka nýstárlegra uppeldisaðferða við ungbörn sem hún beitti við Hörpu Dís og vakti athygli. Nokkuð sem ég get ekki séð annað en að hafi gefist afar vel.

Hollustan var hennar höfuðmál og þar náði hún að hafa áhrif á heila kynslóð – svo og komandi kynslóðir, því „ungur nemur, gamall temur“. Unnur var frumkvöðull, –  og frumkvöðulshlutverkið er erfitt. Frumkvöðlar þurfa að fara grýtta braut til að ná sínu fram. Þá braut fór hún og gafst aldrei upp og kvartaði aldrei ef á móti blés. Hún fór hana á sinn hátt með bros á vör og léttri lund. Árangurinn er meðal annars það sem við sjáum og höfum heyrt í dag, – heilsuleikskólarnir orðnir 21 og þeim mun fjölga og heilsustefna sem er orðin sjálfsögð.

Það er mér sönn ánægja að fá að opna heimasíðu heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur sem er verðugur minnisvarði um hennar mikla brautryðjendastarf í manneldismálum og heilsuvernd. Komandi kynslóðir verða í ævarandi þakkarskuld við hana. Ég opna hér með formlega heimasíðu heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur.

ÁRJ/ 18. jan. 2013.

 

Garðasel verður heilsuleikskóli

Föstudaginn 5. október var leikskólinn Garðasel í Reykjanesbæ vígður sem heilsuleikskóli og er þar með orðinn hluti af samfélagi Samtaka heilsuleikskóla um allt land. Kristín Eiríksdóttir, formaður SHL, afhenti Ingibjörgu Guðjónsdóttur, leikskólastjóra Garðasels, fána Heilsustefnunnar og viðurkenningarskjal því til staðfestingar. Fullt var út úr dyrum og mætti m.a. bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Árni Sigfússon, og var hann fenginn til að halda á heilsufánanun á meðan Kristín útskýrði merkingu hans. Þetta má allt sjá í myndbandinu hér að ofan.

 

Urðarhóll fær Grænfánann

Föstudaginn 19. október mun Gerður Magnúsdóttir fulltrúi Landverndar afhenda Heilsuleikskólanum Urðarhóli Grænfánann. Boðið verður upp á heitt kakó og kleinur á milli kl 8:30 og 9:00.

Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Það sem af er árinu 2008 hafa 38 skólar fengið náð fyrir augum stýrihóps Landverndar um Grænfána og hafa fengið fána í vor eða fá hann í upphafi skólaárs í haust. Þetta eru 15 leikskólar, 22 grunnskólar og einn framhaldsskóli. 25 þessara skóla eru nú að fá sinn fyrsta fána en hinir að fá fána í annað, þriðja eða jafnvel fjórða skipti.

Kristín kosin formaður

Aðalfundur Samtaka heilsuleikskóla var haldinn á Akureyri föstudaginn 16. mars sl. Byrjað var á að fara í heimsókn í Heilsuleikskólann Krógaból þar sem Anna R. Árnadóttir leikskólastjóri og Jórunn Jóhannesdóttir aðstoðarleikskólastjóri tóku á móti gestum. Síðan tóku við stíf fundarhöld fram eftir degi í Lions-sal Akureyrar.

Í upphafi fundarins var Unnar Stefánsdóttur minnst með einnar mínútu þögn. Að því loknu hófust venjuleg aðalfundarstörf og var Kristín Eiríksdóttir, leikskólastjóri Árbæjar á Selfossi, kosin formaður samtakanna og Sigrún Hulda Jónsdóttir, leikskólastjóri Urðarhóls í Kópavogi, varaformaður. Í þakkarræðu sinni lýsti Kristín yfir tilhlökkun um að vinna að heilsustefnunni í framtíðinni.

Miklar umræður urðu á fundinum um Heilsubók ungbarna sem samtökin vinna að. Til máls tóku Kolbrún Guðmundsdóttir, Hulda Jóhannsdóttir, Berglind Grétarsdóttir, Ingunn Sveinsdóttir, Oddný Baldvinsdóttir og Sigrún Hulda Jónsdóttir. Fram kom gagnrýni á breytta hugtakanotkun í bókinni sem er í ósamræmi við hugtök heilsustefnunnar og Heilsubókar barnsins, lengd bókarinnar, hversu ítarleg hún væri og að málþroska væri bætt við. Sigrún Hulda Jónsdóttir þakkaði fundarmönnum fyrir góðar ábendingar og sagði að þær myndu nýtast vel í vinnunni sem væri framundan.

Að loknum aðalfundi hélt Díana Gunnarsdóttir heilsusálfræðingur fyrirlestur um heilsu og líðan í dagsins önn. Mikil ánægja var með fyrirlesturinn og að honum loknum héldu fundargestir endurnærðir til síns heima.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skólar ehf með 5 leikskóla og 130 starfsmenn

Guðmundur Pétursson, framkvæmdastjóri Skóla ehf, segir í viðtali við Víkurfréttir að fyrirtækið muni halda áfram að vinna eftir heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur þrátt fyrir að Unnur sé fallin frá. Ólöf Kristín Sívertsen hefur tekið við keflinu af Unni og mun hún, ásamt öðru fagfólki Skóla, vinna ötullega að þeirri stefnu fyrirtækisins að auka veg heilsustefnunnar og fjölga heilsuskólum á Íslandi.

Viðtal við Guðmund Pétursson

Heilsuskokk Garðasels

Í gær var hið árlega heilsuskokk leikskólans Garðasels en það er hluti af leiðum leikskólans í hreyfingu þar sem markmiðið er að auka gleði og vellíðan allra sem taka þátt. Farið var á Jaðarsbakkasvæðið á Akranesi og hlaupið hringinn í kringum grasvöllinn. Sumir hlupu nokkra hringi á meðan aðrir létu sér nægja að fara einn. Allir fengu verðlaunapening fyrir afrekið og ekki annað að sjá en börnin hafi verið göð með „Sollu stirðu-peninginn“ sem þau fengu í lokin.

Andlát: Unnur Stefánsdóttir

Mánudaginn 8. ágúst 2011 lést formaður Samtaka heilsuleikskóla Unnur Stefánsdóttir. Unnur verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 13.

Við hjá Heilsustefnunni vottum aðstandendum Unnar samúð okkar. Unnur var kraftmikill leiðtogi og frumkvöðull. Hún var upphafsmaður Heilsustefnunnar og hefur sú stefna vaxið og dafnað undir hennar stjórn. Við munum sakna góðs félaga, frábærrar samstarfskonu og sterks leiðtoga

Íþróttadagur á Króki

Íþróttadagur Króks var haldinn hátíðlegur þann 15. júní. Í tilefni dagsins voru vígð ný vesti sem leikskólinn fékk frá TM.

Dagurinn byrjaði á hinu svokallaða „Krókshlaupi“, hlaupið var hringinn framhjá Nettó og verslunarmiðstöðinni og að leikskólanum aftur. Þegar komið var í leikskólann var boðið upp á ávexti og síðan var farið í leiki, í boði var til dæmis að sulla í sullukari, spila körfubolta, mála og margt fleira.

Í hádeginu voru grillaðir hamborgarar, boðið upp á grænmeti með og djús og vatn að drekka. Eftir hádegi fóru yngri börnin inn að hvíla sig og eldri fóru í sögustund. Dagurinn heppnaðist einstaklega vel og tóku krakkar í Vinnuskóla Grindavíkurbæjar þátt í honum og eiga þau hrós skilið.

 

Holtakot vígður

Vígsla á heilsuleikskólanum Holtakoti á Álftanesi fór fram fimmtudaginn 28.apríl á 5 ára afmæli skólans. Dagurinn var þannig að athöfnin byrjaði klukkan 9.00 með því að elstu börn skólans sungu 3 lög fyrir gesti. Síðan sagði Ragnhildur Skúladóttir leikskólastjóri frá sögu skólans, vinnu starfsfólks og áherslum frá upphafi og hvernig leikskólinn þróaðist út í að verða Heilsuskóli. Lagði hún áherslu á hvað Heilsubók barnsins væri mikið gull þar sem hún rammar inn faglegt starf leikskólans og er mikil og góð gjöf til foreldra að leikskólagöngu lokinni.

Síðan hélt formaður Samtaka Heilsuleikskóla og móðir stefnunnar Unnur Stefánsdóttir ræðu, þar sem hún sagði frá upphafi stefnunnar og áherslum, auk þess að segja sögu Holtakots í að verða Heilsuskóli. Síðan afhenti hún skjal sem vottar að Holtakot sé orðinn Heilsuleikskóli og fánann.

Eftir það var fánanum flaggað, leikskólastjóri og börn úr Krakkakoti komu og færðu Holtakoti gjöf og héldu smá ræðu, bæjarstjórnin kom og hélt smá ræðu einnig og færði leikskólanum blómvönd og er mikil ánægja hjá þeim að skólinn hafi tekið þetta skref.

Að ræðuhöldum loknum sungu gestir afmælissöng fyrir leikskólann og svo fengu sér allir veitingar sem voru í boði. Það var vel mætt á athöfnina og mikil gleði og ánægja ríkti í starfsmannahópnum með þennan áfanga og er Holtakot ákaflega stolt að tilheyra þessum skólum.

Aðalfundur Samtaka Heilsuleikskóla 2011

Aðalfundur Samtaka Heilsuleikskóla verður haldinn fimmtudaginn 31. mars 2011 á Selfossi. Dagskráin er sem hér segir:

 

Kl. 11:00 —12:00

Heimsókn í Heilsuleikskólann Árbæ á Selfossi

Kl. 12:00 – 12:45

Hádegisverður í Hótel Selfoss. Kjúklingasalat á kr. 1950 pr. mann.

Hver og einn þátttakandi greiðir fyrir sig.

Kl. 12:45-15:00

Aðalfundur Samtaka Heilsuleikskóla haldinn í Hótel Selfoss

-Skýrsla stjórnar

-Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna

-Umræður um skýrslu og reikninga

-Lagabreytingar

-Kosning meðstjórnanda og varamanns

-Kosning tveggja skoðunarmanna

-Önnur mál:

Heilsubók ungbarna

Námskeið í haust

Umsókn úr forvarnarsjóði

 

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Kristínar Eiríksdóttur á kristin@arborg.is  fyrir þriðjudaginn  29 mars nk.

Heilsukveðjur

Stjórn Samtaka Heilsuleikskóla